Hvernig virka Lift ComplexTM hylkin?
Grunnhugsunin með Lift Complex hylkjunum er ađ næra húðina innan frá þ.e. með blóðrás. Bíótínið í hylkjunum er mikilvægasta húðvítamínið, það örvar framleiðslu nýrra húðfruma og hraðar efnaskiptum húðarinnar.

Beta-karótín og E-vítamín vernda húđina fyrir sindurefnum í umhverfinu og A-vítamín er andoxunarefni (það hægir á súrefnisbruna í líkamanum). Ţessi efni aðvelda húðinni að endurnýja sig. Endurnýjunin á sér stað í neðri lögum húðarinnar og er eingöngu nærð innanfrá.

Við inntöku Lift Complex hylkja kemst Bíótín, A- og E-vítamínin með blóðrásinni til húðarinnar og veitir henni nauðsynlega næringu. Tryggir heilbrigða endurnýjun húðfruma og styrkir þar með ónæmiskerfið. Minnkar sjáanlegar afleiðingar öldrunar, hægir á öldrun húðarinnar og bætir litarhátt hennar. Sjáanlegur árangur á allri húðinni (ekki bara andliti) verður á innan við 30 dögum frá því að meðferð hefst. Húðin sléttist, verður mýkri, rakameiri og fær hraustlegra útlit.
Hvernig á að nota Lift ComplexTM?
Lift Complex pakkinn innheldur 4-vikna skammt af hylkjum til inntöku með mat og 50ml af næturkremi. Gott er að hafa næturkremstúpuna á náttborðinu, leyfa húðinni aðeins að jafna sig eftir kvöldþvottinn og bera kremið framan í sig með léttum strokum, bera kremið niður á háls og á hendur og handarbök. Ástæða þess að kremið er næturkrem er að sólarljós dregur úr vikni þess.

Lift Complex kremið er í tveimur styrkleikum; Dream Strong er fyrir þurra, illa farna húð (hrukkótt). Eftir 3-6 mánaða notkun þess eða þegar þurrkur í húðinni hefur lagast er gott að skipta yfir í Dream Soft. Dream Soft er fyrir feita, venjulega og blandaða húð. Hylkin í pökkunum eru þau sömu hvort sem er Dream Strong eða Dream Soft.


Lift Complex | Virkni | Notkun|Spurt og Svarađ | Kaupa|info@liftcomplex.is